Sumar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sumar

Kaupa Í körfu

Sumarið er gengið í garð, svo mikið er víst, enda hefur veðrið leikið við landsmenn síðustu daga og blíðan virðist ekkert vera á förum ef marka má veðurspárnar. Sól skein í heiði í Reykjavík í gær og fólk kunni greinilega að meta það. Myndatexti: Einstök veðurblíða var um sunnan- og vestanvert landið í gær og spáir Veðurstofan þurrki og hlýjindum um land allt næstu daga. Þessi litla stúlka gleymdi sér í sandkökubakstri á nýju ylströndinni í Nauthólsvík en þar nutu fjölmargir borgarbúar sólarinnar í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar