Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður

Dóra Guðbjört Jónsdóttir gullsmiður

Kaupa Í körfu

Hallgrímur Pétursson er kominn aftur í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, þar sem hann var prestur á árum áð- ur. Þökk sé Dóru Guðbjörtu Jóns- dóttur, gullsmiði í Gullkistunni við Frakkastíg í Reykjavík, og stór- fjölskyldu hennar, sem gáfu í vik- unni Saurbæjarprestakalli um 100 ára gamla mynd af sálmaskáldinu, sem Samúel Eggertsson, móðurafi hennar, teiknaði. Dóra segir að póstkort með teikn- ingum Samúels hafi verið mjög vin- sæl og fólk komi enn í búðina hjá sér til að spyrjast fyrir um þau. „Það er ótrúlegt hvað fólk man eftir honum því hann dó 1949,“ segir Dóra. „Þegar ég hef spurst fyrir um póstkortin hjá antíksölum í Kola- portinu segja þeir að stöðugt sé spurt um kortin en þau komi sjaldan inn og fari jafnóðum.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar