Stakkholt 2

Stakkholt 2

Kaupa Í körfu

Fasteignafélagið Stakkholt-miðbær keypti 48 íbúðir í nýju fjölbýlishúsi sem er í smíðum í miðborg Reykja- víkur, eða um þriðjung íbúðanna. Um er að ræða sjö hæða stigagang í hús- eigninni Stakkholt 2a. Alls 139 íbúðir verða smíðaðar í nokkrum stigagöng- um á Stakkholtsreitnum. Tvö eignarhaldsfélög eru skráð á sömu kennitölu og félagið og heita þau Stakkholt-miðbær og R-157. Stjórn félagsins skipa Ingi Guð- jónsson lyfjafræðingur og Jón Á. Ágústsson. Fram kemur í hluta- félagaskrá að tilgangur félagsins sé kaup, sala, eignarhald og útleiga fast- eigna, lánastarfsemi og skyldur rekstur. Hvorki náðist í Inga né Jón við vinnslu fréttarinnar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar