Læknar og annað starfsfólk á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Læknar og annað starfsfólk á bráðamóttöku Landspítala Fossvogi

Kaupa Í körfu

Mikið álag er orðið á bráðadeild Landspítalans vegna verkfalls lækna og segir Ólafur Baldursson, fram- kvæmdastjóri lækninga, spítalann ekki geta sinnt fólki sem er í brýnni þörf fyrir að komast í aðgerðir. Um 140 skurðaðgerðir og á sjötta hundrað heimsóknir á göngu- og dag- deildir hafa fallið niður frá því að verkfallið hófst í síðustu viku. Ef fram heldur sem horfir verða aflýstar heimsóknir á göngudeildir farnar að nálgast eitt þúsund í vikulok. Ólafur segir að endurraðað verði á biðlista eftir aðgerðum. Eftir að boð- uðu verkfalli ljúki 11. desember taki við jólafrí. Því verði ekki hægt að ganga á biðlista fyrr en á nýju ári. Viðbótarbiðtími leiðir til óvissu „Ég hef áhyggjur af afdrifum fólks sem nú hefur orðið fyrir áhrifum verkfallsins og bíður eftir aðgerð eða annarri þjónustu hjá okkur. Þessu fylgir óvissa, við vitum ekki hvernig þessu fólki reiðir af á þessum viðbót- arbiðtíma ... Það lítur út fyrir langa viðbótarbiðlista í marga mánuði og var nú nóg fyrir. Þetta er algert ófremdarástand og mikilvægt frá sjónarhóli spítalans að deiluaðilar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar