Björn - Rafnar

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Björn - Rafnar

Kaupa Í körfu

Morgunblaðið veitir tíu fyrirtækjum viðurkenninguna Vitann 2014. „Það er ánægjulegt að heyra þetta. Það er alltaf hvetjandi að fá klapp á bakið,“ sagði Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnars ehf. í Kópavogi, þegar blaðamaður Morgun- blaðsins greindi honum frá því að fyrirtækið hlyti viðurkenningu blaðsins, Vitann 2014, á landsvísu fyrir að vera einn af vaxtarsprotum at- vinnulífs á landsvísu. Við- urkenningin er hluti af umfjöllun blaðsins undanfarnar vikur um vaxtarbrodda í íslensku atvinnulífi. Rafnar vinnur að þróun og til- raunasmíði báta með nýju skrokk- lagi sem hefur mikinn stöðugleika og mýkri hreyfingar en venjulegir bátsskrokkar. Starfsmenn fyrirtæk- isins, sem er til húsa í Vesturvör í Kópavogi, eru 28. Samtals hljóta tíu fyrirtæki viðurkenninguna Vitinn 2014 að þessu sinni. Þetta eru Traust þekking ehf. á Vesturlandi, G. Run á Snæfellsnesi, Norður & Co. á Vestfjörðum, Ork- ey á Akureyri, Lunga skólinn á Austurlandi, Grímur kokkur á Suður- landi, Stolt Sea Farm á Suð- urnesjum, Teledyne Gavia á höf- uðborgarsvæðinu og Controlant í Reykjavík. Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnars ehf., sem fékk viðurkenningu Vitans 2014 á landsvísu

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar