Læknar hjá sáttasemjara

Læknar hjá sáttasemjara

Kaupa Í körfu

Tveimur fundum samninganefnda lækna og skurðlækna við samninga- nefnd ríkisins lauk í gær án árang- urs. Boðað hefur verið til fundar í launadeilu lækna 29. desember næstkomandi og hjá skurðlæknum hinn 30. desember. Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, segir að fund- urinn í gær hafi verið langur. „Okkur þykir þetta ganga frekar hægt og í okkar huga er alls óvíst hvort þetta muni ganga. Við getum orðað það þannig að það sé ekki mikil bjart- sýni. En það er í það minnsta búið að boða til annars fundar,“ segir Þor- björn. Ef ekki semst munu umfangs- meiri verkfallsaðgerðir en þær sem gripið var til frá október til desem- ber hefjast 5. janúar næstkomandi. Fundur samninganefnda Skurð- læknafélags Íslands og ríkisins í gær var um tveggja tíma langur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar