Fossvogskirkjugarður - Snjór

Fossvogskirkjugarður - Snjór

Kaupa Í körfu

„Við erum búin að ryðja allar helstu leiðir. Það er líka góð spá um jólin þannig að við teljum ástandið nokkuð gott. Við erum hins vegar með hliðarstíga sem enn eru óruddir en það gerir ekkert til því fólk hefur nú gott af því að ganga aðeins,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, for- stjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Fannfergið hefur víða áhrif og svo er einnig hjá kirkjugörðum. Þótt Þórsteinn gæti eins verið að tala um ástand vega í Reykjavík þá er hann að ræða um kirkjugarða höfuðborgarsvæðisins. Þúsundir bíla munu streyma í kirkjugarðana um jól- in og tugir þúsunda gesta. Segir Þórsteinn að þol- inmæði verði að vera í farteskinu. „Áður en komið er í kirkjugarðana er gott að huga að nokkrum grunn- atriðum. Það er til dæmis hentugt að vera með litla skóflu með sér ef þarf að hreinsa af leiðum. Einnig er gott að hafa skreytingar sem vistvænastar því það munar miklu þegar þeim er fargað. Einnig þarf að vera vænn skammtur af þolinmæði því hingað koma þús- undir bíla og enn meira af fólki.“ Þórsteinn bendir á að Íslendingar séu duglegir að vitja leiða og þegar erlendir kollegar hans koma í heimsókn fallast þeim oft hendur yfir hversu mikil um- ferð sé um garðana. „Skylduræknin að heimsækja þá sem eru farnir er mikil meðal Íslendinga yfir hátíð- arnar.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar