Haraldur Líndal Haraldsson

Haraldur Líndal Haraldsson

Kaupa Í körfu

Hafnarfjörður sker sig svolítið úr á höfuðborgarsvæðinu. Í Hafnarfirði er ákveðin menning. Lögð er mikil áhersla á íþróttamál og eigum við mikið af afreksfólki á sviði íþrótta, tónlistar og leiklistar og auk þess er hér öflugt leikhúslíf og mikil starfsemi í gamla Bæjarbíóinu. Bæjarstæðið sjálft er mjög fallegt og aðlaðandi. Hér er miðbær og er Hafnarfjörður eina sveitarfélagið sem státar af miðbæ á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. Þar eru reglulegar uppákomur auk þess sem við erum með víkingahótel sem skapar bænum sérstöðu,“ segir Haraldur Líndal Haraldsson bæjarstjóri í Hafnarfirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar