Við Elliðaá

Við Elliðaá

Kaupa Í körfu

Hestamenn hvaðanæva af landinu hafa glaðst undanfarna daga á glæsilegu Landsmóti hestamanna í Víðidal, eins og glöggt hefur komið fram hér á síðum Morgunblaðsins. En það eru til annars konar fákar en þessir hlýlegu, mjúku, skjóttu, gráu og brúnu sem glatt hafa augu áhorfenda síðan á fimmtudag. Þessi renndi sér á glæstum fáki úr áli eða stáli í Elliðaárdalnum í góðviðrinu í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar