Oddur Eiríksson

Jim Smart

Oddur Eiríksson

Kaupa Í körfu

Oddur Eiríksson er mikill útilífsmaður og skokkar daglega. Hann er byrjaður að teikna skokkhringinn sinn sem hefst við heimili hans í Grænuhlíðinni. "Þetta eru 9 kílómetrar, ég mældi vegalengdina með hjálp forrits á slökkvistöðinni sem heitir Eldibrandur," segir Oddur sem starfar sem slökkviliðsmaður. "Rauði liturinn táknar erfiða kafla í skokkinu, sá græni gras og sá svarti malbik og auðn. Ég skokkaði þessa leið tvisvar í viku í þrjú ár en eftir að hundurinn sem ég fékk lánaðan sem skokkfélaga flutti upp í Mosfellsbæ hef ég verið latari."

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar