Bókaskjóðurnar - Seljaskóli

KRISTINN INGVARSSON

Bókaskjóðurnar - Seljaskóli

Kaupa Í körfu

Dröfn Vilhjálmsdóttir bókasafnsfræðingur - Edda Björg Sverrisdóttir, Auðbjörg Kristín Andrésdóttir, Matthías Ríkarðsson, Álfheiðru Bjarnadóttir, Þórunn Ást Imsland og Guðmundur Helgi Imsalnd. „Það skapast skemmtileg stemning í kringum það þegar ég dreg út hverjir fá bókaskjóðu. Krakkarnir eru mjög spenntir fyrir þessu en eitt meginmarkmið verkefnisins er einmitt að gera það spennandi og áhugavert að lesa bækur,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir, bókasafnsfræðingur í Seljaskóla, um bókaskjóðurnar í skólanum, lestrarhvetjandi verkefni fyrir 2. til 7. bekk sem hófst sl. vor. Til að fjármagna það var leitað til nærsamfélagsins; m.a. íbúa í hverfinu og fyrrverandi nemenda. Stofnað var félagið Bókavinir Seljaskóla og farið af stað með bókaskjóður í sérmerktum pokum sem nemendur fá reglulega heim með sér í vikutíma.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar