Snjókoma

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Snjókoma

Kaupa Í körfu

Leiðindaveður gekk yfir landið í gær með éljagangi og hvassviðri. Þessir ferðamenn létu veðrið þó ekki stoppa sig frá því að æða út í kuldann og ná myndum af höfuðborginni í vetrarbúningi. Eflaust vilja margir að snjó fari að leysa til að vorið geti hafist, en einhver bið verður á því. Loka þurfti vegum um Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði vegna veðurs í gærkvöldi, og samkvæmt upplýsingum frá Veð- urstofu Íslands má áfram búast við erfiðum akstursskilyrðum víða sunnan- og vestanlands í kvöld. Þá verður hvassviðri og ofankoma víða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar