Við Landakotstún

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Við Landakotstún

Kaupa Í körfu

Aðildarfélög Samiðnar hafa gert við- horfskannanir meðal félagsmanna vegna komandi kjaraviðræðna og sýna þær að félagsmenn vilja frekar gera skammtímasamning til eins til tveggja ára en að samið verði til lengri tíma, samkvæmt upplýsingum Hilmars Harðarsonar, formanns Samiðnar. Vinna við undirbúning kröfugerðar Samiðnar stendur sem hæst þessa dagana en Samiðn fer með samningsumboð fyrir hönd aðildarfélaganna í kjaraviðræðunum. ,,Við erum að vinna í kröfugerðinni og leggjum hana fram fljótlega,“ segir Hilmar. ,,Við erum að reikna út og kostnaðarmeta og hitta aðra hópa sem eru í svipaðri stöðu og við,“ bætir hann við.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar