Tríó Solea

Jim Smart

Tríó Solea

Kaupa Í körfu

Þýsku djassistarnir í Solea verða í Listasafninu í kvöld frétt: SOLEA er þýskt djasstríó sem leggur metnað sinn í frumsamið efni sem í senn ber einkenni evrópsks nútíma og amerískrar djassarfleifðar. Tríóið skipa þeir Markus Horn píanóleikari, Lars Hansen bassaleikari og Dieter Schmigelok slagverksleikari. Tónlist Solea spannar allt frá lýrískum ballöðum í taktfastri sveiflu í eldfiman latin-djass. Einkenni tónlistarflutnings þeirra félaga eru samskipti, lífskraftur og tilfinning fyrir smáatriðum. Þeir tengja á smekklegan hátt nútímadjass við grunneiningar klassískrar og suðuramerískrar tónlistar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar