Matthew Johnstone - Geðhálp

KRISTINN INGVARSSON

Matthew Johnstone - Geðhálp

Kaupa Í körfu

Ég átti svartan hund e. Matthew Johnstone „Ég held að við kynnumst öll þunglyndi á einhvern hátt á einhverjum tíma lífsins, hvort sem það er í gegnum ástarsorg, andlát eða annað,“ segir Matthew Johnstone, höfundur metsölubókarinnar Ég átti svartan hund, sem hefur verið seld í 20 löndum og þýdd á 28 tungumál. Í gær talaði Matthew á málþingi Geð- hjálpar, Svarti hundurinn er raunverulegur, en með málþinginu fagnaði Geðhjálp útgáfu bókarinnar á Íslandi. Þar mátti hlýða á reynslusögur einstaklinga sem gengið hafa í gegnum þunglyndi auk þess sem athygli var vakin á útbreiðslu sjúkdómsins en í stefnir að þunglyndi verði önnur algengasta ástæða örorku í heiminum árið 2020.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar