Ríkissáttasemjari - Elísabet Ólafsdóttir

Ríkissáttasemjari - Elísabet Ólafsdóttir

Kaupa Í körfu

Enginn gangur er í flestum þeim kjaradeilum sem vísað hefur verið til ríkissáttasemjara og sáralítið hefur verið um fundarhöld í húsnæði sáttasemjara undanfarna daga. Tæplega 40 óleystar kjaradeilur eru komnar á borð ríkissáttasemjara fyrir nálægt hundrað þúsund launþega og verkföll standa yfir en eftir sem áður er lítið tilefni talið til að boða deilendur til viðræðna. Alls eru 12 fundarsalir og tvö minni vinnuherbergi í húsnæði ríkissáttasemjara og hafa þeir að mestu staðið auðir undanfarna daga. Viðmælendur sem eru með langa reynslu af kjarasamningagerð segja að þetta ástand sé mjög óvenjulegt og alvarlegt. Við sambærilegar kringumstæður hafi yfirleitt verið í gangi tíu til 20 fundir hjá sáttasemjara á hverjum degi en nú hafa aðeins verið haldnir fimm formlegir fundir frá því um seinustu helgi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar