Smiðir

Kristján Kristjánsson

Smiðir

Kaupa Í körfu

NÝÚTSKRIFAÐIR iðnsveinar í húsasmíði á Norðurlandi fengu nýlega afhent sveinsbréf sín og var að venju efnt til hófs af því tilefni. Alls hafa 14 húsasmiðir lokið sveinsprófi á árinu og voru 9 þeirra viðstaddir afhendinguna. Á myndinni sem tekin var af þessu tilefni eru frá vinstri Guðmundur Jóhannsson, prófmeistari, Hólmsteinn Snædal, prófnefndarmaður, og þá koma hinir nýútskrifuðu húsasmiðir, Gunnar Sveinarsson, Finnur Sigurðsson, Hilmir Freyr Jónsson, Ingólfur Björnsson, Bjarni Ármann Héðinsson, Valbjörn Vilhjálmsson, Þórir Ármannsson, Sævar Sævarsson og Marteinn Helgason, en lengst til vinstri eru þeir Guðmundur Ómar Guðmundsson formaður Félags byggingamanna í Eyjafirði og Stefán Jónsson formaður Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar