Flugslys við Mosfellsbæ

KRISTINN INGVARSSON

Flugslys við Mosfellsbæ

Kaupa Í körfu

Magnús Hlini Víkingur Magnússon, flugmaður flugvélar sem hafnaði í sjónum við Mosfellsbæ í gær, segist ekki hafa verið í lágflugi þegar atvikið átti sér stað heldur hafi einungis verið um slys að ræða. „Ég var að fara að taka snertilendingu til austurs og var því alls ekki í neinu lágflugi eða með glannaskap,“ segir Magnús Hlini og bendir á að þegar hann tekur u-beygju á flugvél sinni hafi hann verið í „góðri hæð“. Magnús Hlini hefur verið með einkaflugmannsréttindi í um tvö ár og á að baki 140 til 150 flugtíma. Í gærmorgun, einungis fáeinum klukkustundum fyrir slysið, lauk hann síðasta skólaprófi sínu í atvinnuflugmannsnámi. Braut sér leið úr flakinu sem fylltist af vatni Aðspurður segir Magnús Hlini flugvélina, sem er af gerðinni Jodel D 117A, hafa misst hæð í miðri vinstribeygju. „Hún fór í dýfu á leiðinni niður í vinstribeygju. Ég gef þá í botn og reyni um leið að rétta vélina af en hæðin var ekki nóg til þess. Fyrst fór vinstri vængurinn í sjóinn og svo endaði vélin á hvolfi.“ Spurður hvort hann muni vel eftir slysinu sjálfu kveður hann já við. „Ég man eftir eiginlega öllu en ég er samt ekki alveg viss hvernig ég komst út. Ég man eftir að hafa brotið eitthvað. Ég held ég hafi einhvern veginn náð að brjóta mér leið út um hlið vélarinnar,“ segir Magnús Hlini. „Ég fór strax að leita að símanum mínum svo ég gæti hringt í Neyðarlínuna, en það sást ekkert ofan í vatninu.“ Eftir að flugvélin skall á haffletinum fylltist klefinn fljótlega af sjó. Hann segist því hafa verið lengi á bólakafi áður en honum tókst að brjóta sér leið út úr flaki vélarinnar. Höggið við brotlendingu af þessu tagi er gríðarlegt en í slysinu fór meðal annars önnur öxl Magnúsar Hlina úr lið auk þess sem hann hlaut fjölmarga minni áverka. Hann má þó teljast heppinn, sér í lagi í ljósi þess hve illa skemmd flugvélin er.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar