Michael Roth - ráðherra Evrópumála - Ríkistjórn Þýskalands

KRISTINN INGVARSSON

Michael Roth - ráðherra Evrópumála - Ríkistjórn Þýskalands

Kaupa Í körfu

Þýsk stjórnvöld harma að stjórn Íslands vilji ekki taka upp viðræður um aðild að Evrópusambandinu á ný, en virða um leið afstöðu íslenskra stjórnvalda. Þetta segir Michael Roth, Evrópumálaráðherra Þýskalands, sem staddur er hér á landi. Roth var spurður hvort þýsk stjórnvöld litu svo á að Ísland væri enn umsóknarríki. „Stjórn Íslands skrifaði Evrópusambandinu og aðildarríkjum þess bréf um að ríkisstjórn Íslands vildi ekki taka upp aðildarviðræður á ný,“ segir Roth. „Við hörmum þetta. Það hefði glatt mig verulega ef við hefðum getað leitt að- ildarviðræðurnar til farsælla lykta. Auðvitað virðum við hins vegar afstöðu núverandi ríkisstjórnar.“ Roth sagði að það væri Íslendinga að átta sig á því hvers vegna ekki hefði tekist að ljúka viðræðunum í tíð fyrri ríkisstjórnar. „Ísland er stöðugt, gamalt og stolt lýðræðisríki og mér virðist hér vera deilt um aðild að Evrópusambandinu eins og annað,“ sagði hann. „Það ber vitni sterkri stöðu lýðræðisins í landinu. Hins vegar torveldaði viðræð- urnar í heild að ESB er um þessar mundir ekki beint í auðveldri stöðu í efnahags- og félagsmálum. Í mörgum löndum er atvinnuleysi mikið, ekki er búið að yfirvinna kreppuna á fjármálamörkuðum og ríkisskuldakreppuna. Það hefur örugglega átt sinn þátt í því að Evrópusambandið kemur Íslendingum ekki jafnaðlaðandi fyrir sjónir og nauðsynlegt væri.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar