Fokker 50 í 50 ár á Íslandi

Þórður Arnar Þórðarson

Fokker 50 í 50 ár á Íslandi

Kaupa Í körfu

Um þessar mundir eru 50 ár síðan fyrsta Fokker-flugvélin kom til landsins. Af því tilefni bauð Flugfélag Íslands til veislu í gær. Þar komu saman starfsfólk Flugfélagsins til margra ára, áhafnir sem flugu fyrstu Fokker-vélunum og fleiri sem unnu á Reykjavíkurflugvelli árið 1965 þegar fyrsti Fokkerinn kom. Forstjóri Fokker Services í Hollandi, Peter Somers, hélt ávarp ásamt Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, Ragnhildi Hjaltadóttur, ráðuneytisstjóra innanríkisráðuneytisins, og Aðalsteini Dalmann, en hann var einn af þeim sem störfuðu á Reykjavíkurflugvelli þegar fyrsti Fokkerinn lenti þar. Karlakór tók nokkur lög en það var einmitt karlakór sem tók á móti fyrsta Fokkernum. Þá var matseð- illinn sem boðið var upp á nánast sá sami og var í boði um borð í Fokker 50-vélunum þegar þær komu til landsins árið 1992. Auk þessa var því einnig fagnað að brátt tekur Flugfélag Íslands í notkun vélar af Bombardier-gerð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar