Olís

Jim Smart

Olís

Kaupa Í körfu

Myndatexti: Thomas Møller, Sigmar B. Hauksson og Siv Friðleifsdóttir með eitt þeirra veggspjalda sem minna fólk á að safna notuðum skothylkjum og skila. Frétt SKOTVÍS, Olís og umhverfisráðherra undirrituðu í gær nýtt umhverfisátak sem miðar að því að hvetja alla, þó helst skotveiðimenn, til að safna notuðum skothylkjum en skilja þau ekki eftir á víðavangi. "Ef skotveiðimenn geta tekið með sér skothylki á veiðar þá hljóta þeir að geta tekið þau með sér heim," sagði Sigmar B. Hauksson formaður Skotvíss, félags skotveiðimanna. Átakið hófst formlega í gær en skotveiðitímabilið hefst þann 20. ágúst nk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar