Fólk í bæ

Jim Smart

Fólk í bæ

Kaupa Í körfu

REYKJAVÍK skartaði sínu fegursta í gær í ágústsól og blíðu. Höfuðborgarbúar spókuðu sig í góða veðrinu í miðborginni auk þess sem fjöldi erlendra ferðamanna setti svip á bæinn. Gera má ráð fyrir miklum mannfjölda í borginni á morgun, fyrst í tengslum við Reykjavíkurmaraþon og síðan á menningarnótt. Ekki er heldur úr vegi að bregða undir sig betri fætinum í dag á afmælisdegi Reykjavíkur og kíkja á mannlífið. Veðurguðirnir virðast ætla að brosa við höfuðborgarbúum en spáð er léttskýjuðu og 10-15 stiga hita í dag og léttskýjuðu næstu daga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar