Hvalaskoðunarbátur í Akureyrarhöfn

GSH

Hvalaskoðunarbátur í Akureyrarhöfn

Kaupa Í körfu

Hvalaskoðunarbátur í Akureyrarhöfn. Bæjarhátíðin Ein með öllu og Unglingalandsmót á Akureyri drógu að sér þúsundir innlendra ferðamanna um verslunarmannahelgina. Eins og fram kom í Morgunblaðinu nýlega hafa afar fáir innlendir ferðamenn heimsótt Norðurland það sem af er sumri. Þykir hráslagalegt veðurfar vera helsti sökudólgurinn. „Loksins sáum við gríðarlega marga Íslendinga. Fleiri þúsund manns voru saman komin hérna um helgina,“ segir Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Ambassador. Hann segir sjaldgæft að Íslendingar fari í hvalaskoðun en nú um helgina hafi þó nokkrir kíkt á hvalina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar