Leiknir - Stjarnan

Eva Björk Ægisdóttir

Leiknir - Stjarnan

Kaupa Í körfu

Leiknismenn unnu gríðarlega sterkan og mikilvægan sigur á Íslandsmeisturum Stjörnunnar á Leiknisvelli í gærkvöldi. Mikil harka var í leiknum og hart barist á báða bóga. Dómarinn lagði afar háa línu, leyfði margt og einkenndist leikurinn töluvert af því, þótt ekki hafi hallað á annaðhvort liðið. Stjörnumenn voru meira með boltann frá upphafi og freistuðu Leiknismenn þess að sækja hratt. Fremstur hjá Leiknismönnum var Hollendingurinn Danny Schreurs sem byrjaði sinn fyrsta leik. Hann var afar mikilvægur fyrir liðið, hélt boltanum vel og skapaði sér nokkur færi þótt hann hafi gengið markalaus af velli í síðari hálfleik. Ólafur Karl Finsen fékk besta tækifæri Stjörnumanna í fyrri hálfleik en Eyjólfur í marki Leiknis sá við honum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar