Klettaskóli í Suðurhlíð

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Klettaskóli í Suðurhlíð

Kaupa Í körfu

Einar H. Jónsson, verkefnisstjóri framkvæmda vegna viðbyggingar við Klettaskóla í Suðurhlíðahverfi, segir sjónarmið af hálfu íbúa um sprengingar á svæðinu byggð á misskilningi, verktakinn hafi unnið samkvæmt reglum. Íbúar í nágrenninu fengu grenndarkynningu á framkvæmdunum í vor þar sem fulltrúar Reykjavíkurborgar lofuðu að aðeins yrði sprengt einu sinni á dag. Telja íbúarnir að ekki hafi verið staðið við gefin loforð. „Það er ákveðinn misskilningur í gangi með sprengingarnar. Það er ekkert sem bannar að sprengt sé oft á dag. Þegar lagt var af stað í framkvæmdina sáum við fyrir okkur að það yrði sprengt einu sinni á dag og það þótti heppilegast. Þá var áætlað að byrjað yrði að sprengja í byrjun sumars og sprengingar stæðu yfir í allt sumar. Þegar verktakinn kom svo á stað- inn var tekin ákvörðun um að stytta framkvæmdatímann og vinna hrað- ar. Verktakinn taldi að þetta myndi minnka álagið á umhverfið,“ segir Einar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar