Valur - Stjarnan - Knattspyrna kvenna

Valur - Stjarnan - Knattspyrna kvenna

Kaupa Í körfu

Stjarnan vann mikilvægan sigur á Val í gær í fyrsta leik 13. umferðar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu. Lokatölur urðu 4:0 í leik sem hefði í raun getað farið allt öðruvísi. Munurinn á liðunum í gærkvöldi var að mörgu leyti sá að Stjarnan nýtti sín færi – ólíkt Valskonum sem klúðruðu tveimur algjörum dauðafærum. Brasilíska landsliðskonan Francielle opnaði markareikning sinn hjá Stjörnunni í gær í sínum öðrum leik fyrir félagið þegar hún hirti boltann úr öftustu varnarlínu Valsara og afgreiddi knöttinn vel í netið, 1:0, eftir 22. mínútur en fram að þessu hafði leikurinn verið mjög jafn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar