Flugslys, flugmaður fluttur á sjúkrahús

hafa ómerkt

Flugslys, flugmaður fluttur á sjúkrahús

Kaupa Í körfu

Maður lést og annar slasaðist þegar flugvél fórst í Barkárdal, sem liggur inn af Hörgárdal á Tröllaskaga, skammt vestan við Akureyri í gær. Sá sem komst lífs af er Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri flugfélagsins Atlanta og flugstjóri. Maðurinn sem lést er erlendur en ekki er hægt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. Var hann látinn þegar flugvélin fannst. Lögðu mennirnir tveir af stað frá Akureyri klukkan tvö eftir hádegi í gær og var lending flugvélarinnar áætluð á Keflavíkurflugvelli klukkan 16.20. Samhæfingarstöð ríkislögreglustjóra var svo ræst klukkan 17.06 eftir að ljóst varð að flugvélin hafði ekki skilað sér til Keflavíkur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar