Fyrirliðar 1990 Þorgrímur Þráinsson og Pétur Pétursson rifjuðu u

Þórður Arnar Þórðarson

Fyrirliðar 1990 Þorgrímur Þráinsson og Pétur Pétursson rifjuðu u

Kaupa Í körfu

Bikarúrslitaleikur karla í knattspyrnu er stærsti íþróttaviðburður félagsliða víða í Evrópu ár hvert og það á einnig við um Ísland. KR og Valur mætast nú í úrslitum í þriðja sinn. KR vann 1:0 árið 1966, en eftir jafntefli í tveimur leikjum 1990, 1:1 og 0:0 eftir framlengingu, vann Valur 5:4 í vítaspyrnukeppni. Þorgrímur Þráinsson var fyrirliði Vals og Pétur Pétursson fyrirliði KR fyrir 25 árum. Þeir eru sammála um að KR hafi þá verið með betra lið, en að því sé ekki endilega spurt í bikar- úrslitum. „Þetta snýst um augnablikið, að peppa sig upp í baráttu og stríð í 90 mínútur,“ segir Þorgrímur. „Það eru ekki endilega gæðin sem skipta máli heldur viljinn, dugnaðurinn og karakterinn.“

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar