Breiðablik - Fylkir fótbolti kvenna

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Breiðablik - Fylkir fótbolti kvenna

Kaupa Í körfu

Blikastúlkur mættu ansi ákveðnar til leiks í gærkvöldi og sigruðu Fylki mjög örugglega 3:0, og hefði sigurinn getað orðið miklu stærri. Eva Ýr Helgadóttir, markvörður Fylkis, varði oft á tíðum glæsilega og kom í veg fyrir enn stærri sigur Blika. Lið Blika er virkilega vel mannað og þær ætla sér greinilega að landa Íslandsmeistaratitlinum í haust. Með sigrinum tryggðu þær sér fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Fanndís Friðriksdóttir skapaði sér ótal tækifæri en tókst á einhvern ótrú- legan hátt ekki að skora í leiknum, hún brenndi m.a. af víti í seinni hálfleik. Aldís Klara Lúðvíksdóttir skoraði fyrsta mark Blika á 29. mín. eftir að hafa komist ein í gegnum vörn Fylkis og renndi boltanum örugglega framhjá Evu í markinu.Staðan var því 1:0 í hálfleik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar