Júlía Sigríður Pálsdóttir - Páll Matthíasson - flöskuskeyti - Öxarfjarðarskóli

Sigurður Bogi Sævarsson

Júlía Sigríður Pálsdóttir - Páll Matthíasson - flöskuskeyti - Öxarfjarðarskóli

Kaupa Í körfu

„Ég sá tóma flösku í fjörunni og hélt fyrst að einhver hefði haldið þarna partí. En svo sá ég bréfið og vissi þá að þetta væri eitthvað spennandi,“ segir Júlía Sigríður Pálsdóttir, 11 ára Reykjavíkurdama. Hún var með fjölskyldu sinni og vinum á gangi í Héðinsfirði á dögunum þegar þau gengu þar fram á hvítvínsflösku. Hún reyndist innihalda bréf frá nemendum 1. til 4. bekkjar Öxarfjarðarskóla, sem settu flöskuna í sjó þann 17. febrúar á þessu ári. Faðir Júlíu gerði skólafólki nyrðra viðvart í vikunni og sagði því frá fundinum. Í bígerð er að koma flöskunni og bréfinu til viðtakenda við tækifæri. Sjálf er Júlía nemandi í 6. bekk Vesturbæjarskóla

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar