Sýning: Lóðrétt / lárétt

Styrmir Kári

Sýning: Lóðrétt / lárétt

Kaupa Í körfu

Ásýningunni Veflistaverk Júlíönu Sveinsdóttur og Anni Albers: Lóðrétt, lá- rétt í syðri enda vestursalar Kjarvalsstaða hangir úrval af teppamyndvefnaði Júlíönu. Sjálf sýndi hún iðulega saman landslagsmálverk sín og vefnað með óhlutbundnu myndmáli. Á þessari sýningu eru þau sýnd í samhengi listvefnaðar og grafíkverka eftir Anni Albers – og er það út af fyrir sig viðburður að sjá verk Albers á sýningu hérlendis. Vefnaður Júlí- önu og Albers er vitnisburður um eflingu miðilsins samfara módern- ískum hræringum á fyrri hluta 20. aldar. Báðar teljast frumkvöðlar, Júlíana sem þátttakandi í hópi danskra veflistamanna í Danmörku en Albers í tengslum við Bauhaus-skólann í Þýskalandi og síðar Black Mountain College í Bandaríkjunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar