Múkkinn

Sigurður Ægisson

Múkkinn

Kaupa Í körfu

Múkkarnir eru óvenju frakkir þessa dagana í Eyjafirði, líklega sökum þess að nú eru ungar þeirra orðnir töluvert fyrirferðarmiklir og vilja sitt í gogginn og engar refjar. Meðfylgjandi mynd var tekin um borð í Níels Jónssyni EA 106 frá Hauganesi þegar Garðar Níelsson skipstjóri var að gera að afla sem veiddist á sjóstöng í þeim túr, undir lok hvalaskoðunarferðar nýverið, en í Eyjafirði hefur allt verið morandi af hnúfubak undanfarið og ekki óalgengt að sjá 10-20 á tiltölulega litlu svæði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar