Stjarnan - Selfoss Borgunarbikarinn

Eva Björk Ægisdóttir

Stjarnan - Selfoss Borgunarbikarinn

Kaupa Í körfu

Hann var torsóttur, þriðji bikarmeistaratitill Stjörnunnar á síð- ustu fjórum árum þegar meistararnir mættu Selfossi á Laugardalsvellinum á fallegum degi á laugardag. Leikurinn stóð heldur betur undir nafni sem úrslitaleikur, hann var mikil skemmtun og fullur af dramatík þar sem Stjarnan var að horfa á eftir titlinum þegar átta mínútur voru til leiksloka, en sneri blaðinu við áður en yfir lauk. Leikurinn var ekki síður góð auglýsing fyrir íslenska kvennaknattspyrnu sem heldur áfram að vaxa og dafna og umgjörðin sömuleiðis. Stuðningsmenn beggja liða fjölmenntu á völlinn og það var farið að syngja og tralla í stúkunni strax 45 mínútum fyrir leik þegar liðin mættu til upphitunar. Það er fá- heyrt hér og sannarlega til eftirbreytni, en 2.435 manns voru á vellinum sem er áhorfendamet á úrslitaleik kvenna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar