Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Styrmir Kári

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Kaupa Í körfu

Milkywhale. Reykjavík Dance Festival. Dagana 26.-30. ágúst komu sviðslistahátíðirnar Lókal og Reykjavík Dance Festival saman í eina sæng með smekkfulla sýningardagskrá undir nafninu „Every Body’s Spectacular“. Á fimm dögum voru fluttar 17 sýningar sem erfitt var að velja á milli. Dagskráin var sett upp með það að markmiði að mögulegt væri að sjá allar sýningarnar en því miður seinkaði þeim oft töluvert, sem gerði það að verkum að dagskráin raskaðist. Stjórnendur hátíð- arinnar reyndu þó að sjá til þess að áhorfendur misstu ekki af sýningum vegna seinkananna og heppnaðist það í flestum tilfellum. Að öllu öðru leyti tókst hátíð- arhöldurum mjög vel að skapa vinalegt andrúmsloft meðal gesta. Þannig má segja að hugmyndafræðin bak við hátíðina hafi náð lengra en upp á svið, því að vel var haldið utan um gestina með alls kyns hliðarviðburðum og hátíð- arbar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar