Leðurblökur á Siglufirði
Kaupa Í körfu
Þrír laumufarþegar tóku sér far með dönsku skipi sem kom frá Belgíu til Siglufjarðar síðdegis á fimmtudaginn var. Um var að ræða litlar leðurblökur sem höfðu falið sig í farmi skipsins. Verkamenn sem unnu við uppskipunina sáu dýrin. Eitt þeirra og það minnsta forðaði sér frá borði og flaug eitthvað út í buskann. Hin tvö voru gómuð og sett í kassa. Séra Sigurður Ægisson, sóknarprestur, þjóðfræðingur og áhugamaður um náttúrufræði, tók leðurblökurnar í sína vörslu. Hann fór með þær á skrifstofu sína og tók af þeim meðfylgjandi myndir. Leðurblökurnar höfðu hægt um sig og leyfðu prestinum að mynda sig með íslenskum tíkalli. Þegar hann sneri við þeim bakinu tóku þær hins vegar flugið. Önnur settist á loftnetssnúru og vafði hana örmum. Hin hvarf um stund. Sigurður sá hana svo þar sem hún var að gaumgæfa geistleg rit í bókahillu prestsins.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir