Sjúkraliðar

Eva Björk Ægisdóttir

Sjúkraliðar

Kaupa Í körfu

Hátt í fimm þúsund félagsmenn SFR, stéttarfélags í almannaþjónustu, og Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) munu að óbreyttu leggja niður störf á mið- nætti aðfaranótt fimmtudags. Landssamband lögreglumanna (LL), sem ekki hefur verkfallsrétt, er í samstarfi við SFR og SLFÍ í kjaradeilunni, en til nýs fundar hefur verið boðað í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 10 í fyrramálið. Komi til verkfalls er ljóst að það mun hafa víðtæk áhrif. Ritarar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru í hópi þeirra sem fara í verkfall, en Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir undanþágu hafa verið veitta fyrir einn móttökuritara á hverri heilsugæslustöð, sem samtals eru 15 talsins

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar