ÍR - Fram - Handbolti karla - Olís deildin

ÍR - Fram - Handbolti karla - Olís deildin

Kaupa Í körfu

Fram renndi sér upp að hlið ÍR í 5. – 6. sæti Olís-deildarinnar með eins marks sigri í Austurberginu í gærkvöldi. Liðin eru nú bæði með 50% árangur í deildinni. Hafa unnið fjóra leiki og tapað fjórum í fyrstu átta umferðunum. Á þessum tímapunkti á keppnistímabilinu finnst manni þessi lið vera lakari en sterkustu liðin eins og Haukar, Valur og ÍBV. Þau eru á hinn bóginn sterkari en nýliðarnir Víkingur og Grótta. Miðað við fyrstu umferðirnar þá eru ÍR og Fram líklega á nokkuð eðlilegu róli í deildinni miðað við mannskap.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar