Lilja Hrund Lúðvíksdóttir og

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Lilja Hrund Lúðvíksdóttir og

Kaupa Í körfu

Fótbrotinn drengur kemur inn á bráðamóttöku og þarf á læknishjálp að halda. Yrði honum sagt að koma eftir nokkra mánuði? Líklega ekki, en mörg börn með geðrænan vanda þurfa að bíða lengi eftir læknishjálp. Vakin er athygli á þessu og ýmsu öðru varðandi geðheilbrigðismál barna og unglinga í stuttmyndinni Heilabrot, sem gerð var af ungmennaráði UNICEF og sýnd verður í öllum framhaldsskólum landsins í dag. Í myndinni fer fótbrotinn drengur í gegnum heilbrigðiskerfið eins og um barn með geðröskun væri að ræða og myndin er hluti átaksins Heilabrot þar sem bent er á úrræðaleysi í geðheilbrigðismálum barna og unglinga. Meðal þeirra sem tóku þátt í gerð myndarinnar eru þær Lilja Hrund Lúðvíksdóttir 16 ára og Arna Dís Arnþórsdóttir 18 ára sem eru báðar nemendur í Verslunarskólanum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar