Umferðaróhapp á Miklubraut

Umferðaróhapp á Miklubraut

Kaupa Í körfu

Fimm manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar eftir umferðarslys á Miklubraut við Skeifuna síðdegis í gær. Tveir bílar skullu harkalega saman, jeppi og fólksbíll. Var fólksbíllinn á austurleið eftir Miklubraut þegar ökumaður missti stjórn á honum, fór í gegnum vegrið og hafnaði framan á jeppa sem kom akandi eftir Miklubraut til vesturs. Fjórir sjúkrabílar og tækjabíll frá slökkviliðinu voru sendir á staðinn, auk lögreglu. Að sögn varðstjóra hjá slökkvilið- inu komust allir út úr bílunum af sjálfsdáðun en frekari upplýsingar um líðan fólksins lágu ekki fyrir í gærkvöldi. Vegna slyssins varð að loka hluta Miklubrautar til vesturs í um tvo tíma, frá Grensásvegi að brúnni yfir í Mörkin

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar