Dregið út í áskriftaleik Morgunblaðsins

Dregið út í áskriftaleik Morgunblaðsins

Kaupa Í körfu

Dregið var í áskrifendaleik Morgunblaðsins í gær um glæsilegan sportjeppa af gerðinni Suzuki Vitara GLX, að verðmæti 5,4 milljónir króna. Sá heppni reyndist vera Ragnar Ólafsson, einn áskrifenda blaðsins. Eftir nokkra leit náðist loks í vinningshafann í gærkvöldi. Ragnar var þá staddur í fríi á Ítalíu ásamt fjölskyldu og vinum. Fagnaði hann símtalinu mjög en var um leið jafn undrandi yfir tíðindunum og hann var glaður. Þetta var í fjórða sinn sem Moggabíll var dreginn út í áskrifendaleik blaðsins. Dregið út Úlfar Hinriksson og Sonja G. Ólafsdóttir frá Suzuki-bílum og Haraldur Johannessen, Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir og Magnús E. Kristjánsson frá Morgunblaðinu við útdráttinn á Moggabílnum í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar