Hamrahlíðarkórinn æfir - Kristkirkja Landakot

Hamrahlíðarkórinn æfir - Kristkirkja Landakot

Kaupa Í körfu

Hamrahlíðarkórinn kemur fram á tónleikum í Kristskirkju í Landakoti í kvöld, miðvikudagskvöld, og hefjast þeir klukkan 20. Yfirskrift þeirra er „Lofsöngvar og Maríubænir“. Á tónleikunum flytur kórinn með- al annars verk eftir íslensku tónskáldin Þorkel Sigurbjörnsson og Atla Heimi Sveinsson. Þá flytur kórinn tónverkið „… which was the son of …“ eftir Arvo Pärt en verkið er tileinkað Þorgerði Ingólfsdóttur. Einnig eru til að mynda á efnisskránni íslenskt þjóðlag og tónverk eftir Johann Sebastian Bach, de Victoria, Benjamin Britten og Stravinskí, sem öll eiga það sameiginlegt að vera lofsöngvar eða ákalla heilaga Maríu. Um sextíu kórfélagar skipa nú Hamrahlíðarkórinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar