Stjarnan - Grindavík körfubolti kvenna

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Stjarnan - Grindavík körfubolti kvenna

Kaupa Í körfu

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Kristín Fjóla Reynisdóttir Kvennalið Grindvíkinga fékk gríðarlegan liðsstyrk þegar það fékk landsliðskonuna Sigrúnu Sjöfn Ámundadóttur til liðs við sig seinni partinn í október. Eftir stutt stopp hjá Skallagrími sem hún lék með í byrjun tímabilsins ákvað hún að taka tilboði Suðurnesjaliðsins. Sigrún er leikmaður 11. umferðar Dominos-deildarinnar hjá Morgunblaðinu en hún var öflug í sigri Grindavíkur á móti Stjörnunni í fyrrakvöld. Í þeim leik skoraði hún 15 stig, tók 13 frá- köst og átti 3 stoðsendingar. Morgunblaðið fékk Daníel Guðna Guðmundsson, þjálfara Grindavíkurliðsins, til að lýsa Sigrúnu Sjöfn en í leikjunum átta sem hún hefur spilað með liðinu á tímabilinu hefur hún skorað að meðaltali 12,6 stig, tekið 9,1 frá- kast og átt 3,9 stoðsendingar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar