Haukar - Grindavík körfubolti karla

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Haukar - Grindavík körfubolti karla

Kaupa Í körfu

Leik Hauka og Grindavíkur í Domino‘s-deild karla í körfuknattleik, sem fór fram í gærkveldi, verður seint lýst sem fríðum boltaleik. Eftir fyrsta hlutann, sem fór 12:15, var ljóst að bæði lið gerðu sitt besta í að endurspegla færðina í gatnakerfi landsins. Grindvíkingar áttu fínan annan leikhluta og staðan í hálfleik 32:37. Haukar komu hinsvegar til seinni hálfleiksins á vel búnum varnarjeppum og unnu sannfærandi sigur, 75:64.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar