Krakkar - Langholtsskóli

Krakkar - Langholtsskóli

Kaupa Í körfu

Þegar kemur fram í maí verður bragurinn í skólum landsins gjarnan léttari en endranær, enda er þá bryddað upp á ýmsu sem er utan hefðbundinnar dagskrár. Krakkarnir í Langholtsskóla í Reykjavík fóru í vikunni í gönguferð um Laugardalinn, sem er gróskumikil útivistarparadís sem grænn litur færist nú yfir. Þessa dagana er frekar milt í veðri sunnanlands og fyrir vikið dafnar allt og grær. Á sama tíma hafa Norðlendingar hins vegar vaknað upp við fannhvíta jörð á morgnana. Misskipt er mannanna láni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar