Víkingur Ó. - ÍA

Ljósmynd/Alfons Finnsson

Víkingur Ó. - ÍA

Kaupa Í körfu

Einar Hjörleifsson ver vítaspyrnu Garðars Gunnlaugssonar. Íslendingar eru gjarnan veisluglaðir á hvítasunnunni og þá sérstaklega þegar kemur að fermingarveislum. Ólsarar slógu upp veislu annan í hvítasunnu þegar stóri bróðir í fótboltanum, ÍA, kom í heimsókn. Víkingur vann 3:0 sigur og komst í toppsæti deildarinnar með 10 stig. Stórkostleg byrjun nýliðanna sem tefla fram hörkuliði eins og úrslitin sýna. Í gær naut fyrirliðans, Þorsteins Más Ragnarssonar, ekki einu sinni við vegna tognunar í kálfa og á hann þó að vera þeirra þekktasti leikmaður.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar