Gæsamerkingar á Blönduósi

Jón Sigurðsson

Gæsamerkingar á Blönduósi

Kaupa Í körfu

Nýjasta höfuðgæs Blönduósbúa, grágæsin Blanda, hefur fengið sinn eiginn gervihnattarsendi svo hægt verður að fylgjast með ferðum hennar næstu tvö árin. Hún var merkt ásamt 112 öðrum gæsum á Einarsnesi við Blöndu í gær með bókstafnum B, en 16 ár eru síðan gæsir voru merktar síðast á Blönduósi. Ein gæs úr þeim hópi skilar sér enn á heimaslóðir og skilar jafnvel enn ungum. Jón Sigurðsson birtir mynd af eð- algæsinni Blöndu og gæsasérfræð- ingnum Arnóri Þóri Sigfússyni á Facebook-síðu sinni í gærkvöld. Í bakgrunni má sjá hvernig öðrum gæsum hefur verið smalað saman og appelsínugula merkinguna á hálsi þeirra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar