Ásta Henriksen Siglufirði

Sigurður Ægisson

Ásta Henriksen Siglufirði

Kaupa Í körfu

Ásta Henriksen fæddist á Siglufirði árið 1964 og ólst þar upp, fór eftir skyldunám í Menntaskólann á Akureyri og þaðan svo í enn frekara nám að honum loknum og hefur undanfarna tvo áratugi verið enskukennari við Verzlunarskóla Íslands. Þegar tækifæri gefast leggur hún stund á göngur til að halda líkamanum í góðu formi og ekki síður þó til að dreifa huganum frá ys og þys hversdagsins. Þá er myndavélin ómissandi förunautur og alltaf tilbú- in, því Ásta á sér það einstaklega fallega áhugamál að safna hjörtum úr íslenskri náttúru. „Þetta byrjaði fyrir um 10 árum,“ segir hún þegar blaðamaður sest nið- ur með henni til að forvitnast um þessa sérstæðu og heillandi tómstundaiðju

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar