víðistaðakirkja Hafnarfirði. Mynda altaristöfluna sem er sögð liggja undir skemmdum

Þórður Arnar Þórðarson

víðistaðakirkja Hafnarfirði. Mynda altaristöfluna sem er sögð liggja undir skemmdum

Kaupa Í körfu

Freskur Víðistaðakirkju hafa orðið fyrir skemmdum vegna umgangs og rakaskemmda í kjölfar þakleka í kirkjunni. Sótti sóknarnefnd kirkjunnar um styrk hjá Hafnarfjarðarbæ upp á 1,5 milljónir króna til að standa straum af viðgerð og greiða Baltasar Samper listmálara, sem gerði verkin fyrir tæpum 30 árum, fyrir lagfæringuna. Bærinn veitti 250 þúsund krónur í styrk og í bréfi til bæjaryfirvalda lýsir sóknarnefndin yfir vonbrigðum með þær málalyktir. Til að upplýsa bæjarráð hefur sóknarnefndin boðið því í heimsókn í kirkjuna í næsta mánuði til að fá upplýsingar frá fyrstu hendi. Hjörleifur Þórarinsson, formaður sóknarnefndarinnar, hefur ekki fengið viðbrögð bæjarráðs við þessu boði en býst við að málið verði tekið upp þegar sumarleyfum ljúki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar