Sigurður Waage húðflúraður af Fjölni Bragasyni

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sigurður Waage húðflúraður af Fjölni Bragasyni

Kaupa Í körfu

Sú hugmynd kom upp hjá dætrum Sigurðar að í tilefni tímamótanna myndi hann varðveita minninguna um afrekið frá 5. ágúst 1956, með því að láta flúra mynd af Hraundranga í Öxnadal á sig. Tók Sigurður hugmyndinni vel og ákvað hann að láta til skarar skríða í gær. Fjölnir Bragason húðflúrari heimsótti Sigurð á Hrafnistu í hádeginu í gær og skreytti handlegg hans. Prýðir hann nú falleg mynd af dranganum þar sem vel má sjá hve þverhníptur hann er. Myndin sem notuð var sem fyrirmynd að flúrinu er í eigu Sigurðar sjálfs og hangir í herbergi hans á Hrafnistu. Að hans sögn var auðvelt að flúra myndina, enda sjáist skuggarnir vel og að fjallið sé auðþekkjanlegt kennileiti. Auk þess hafi Sigurður lítið hreyft sig á meðan hann mundaði pennann

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar