Alþingi - Þingfundur settur

Alþingi - Þingfundur settur

Kaupa Í körfu

Forsætisráðherra Sigurður Ingi sagði í gær að Fyrsta fasteign væri rökrétt framhald af Leiðréttingunni, nú væri sjónum sérstaklega beint að ungu fólki. Ríkisstjórnin kynnti í gær nýtt úrræði til að auðvelda ungu fólki að kaupa sína fyrstu fasteign. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynntu í gær lagafrumvarp í þessa veru ásamt öðru frumvarpi, um takmörkun verðtryggðra lána til 40 ára. Meðal annars felst í úrræðinu, sem nefnt er Fyrsta fasteign, að séreignarsparnaðarleiðin verði framlengd og kaupendum fyrstu íbúðar gert kleift að nýta séreignarsparnað sinn til þess skattfrjálst. Eygló Harðardóttir, ráðherra húsnæðismála, segir Fyrstu fasteign í góðu samræmi við þá vinnu sem hafi átt sér stað í málaflokknum á kjörtímabilinu og markmið ríkisstjórnarinnar

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar